|
Dagar s�?�?�?�?�?�?°an �?�?�?©g byrja�?�?�?°i �?�
Fyrir 734542 dögum
|
29.01.2008 15:42:06 / skelfan
Sæl öll Jæja.. maður verður að vera duglegri við að muna að blogga, þar sem það er svo langt síðan ég var í svona góðum gír þá gleymi ég stundum að blogga. Staðan er enn frekar góð. Er dugleg í ræktinni BC og borða lítinn sem engan sykur. Leyfði mér smá um helgina, en var fljót að breyta til betri vegar. Finn að vigtin er að fara niður, en ætla mér ekki að vigta mig oft. Það orsakar bara paranoiu.... Er klædd í gallabuxur sem ég keypti í Des og pössuðu þær vel þá,, núna eftir jólin eru þær allt of þröngar en fara passandi með hverjum deginum hahaha... Ætla bara að troða mér í þær  Í gær var góð æfing í BC og fékk ég smá flash back. Var að gera fullt af æfingum, ýmis konar hopp og annað með 8 kílóa lóð á mér. Mikið svakalega var erfitt að hreyfa sig. Gott að fá að upplifa það hvernig er að vera 8 kílóum þyngri svo maður fari ekki aftur í sama farið, þ.e. 85 kíló!!! Get líka rétt ímyndað mér hvað það verður gott að losna við 8 kíló til viðbótar, hvað allt verður auðveldara þ.e. að labba upp og niður stiga og svona, miða við breytinguna sem hefur orðið núna þá verður hitt örugglega himnaríki. En já já.. nóg af blaðri.. Kíki á ykkur | |
»
25.01.2008 09:11:21 / skelfan
Sæl öll sömul og takk fyrir kommentin.. nauðsynlegt að fá svona skemmtileg og uppbyggileg komment. Ég er enn á fullu og finn að ég er komin í rétta gírinn. Er að vinna í sykrinum, þ.e að taka hann út úr mataræðinu en borða í staðinn aðeins meira en áður.. samt sem áður fer vigtin niður. En um daginn var ég komin upp í 76,6 ákvað að hætta að vigta mig í smá tíma, taka sykurinn að mestu út og vigtaði mig loksins í gær og sá þá 75.5 þannig að þetta skilar greinilega árangri, enda sykur mikill óvinur minn. Er í vinnunni, en það tók mig heilan klukkutíma að komast hingað. vinn í garðabæ en bý í grafarvogi!! huhummmm.. ekki sniðugt fyrir ósonlagið, mikill bensínkostnaður Ætla að öllum líkindum á æfingu í kvöld og reyni að halda helginni góðri. Er með fullt af litlum markmiðum í huga sem ég ætla að skrifa niður hér til hliðar, ætla þó ekki að setja nein tímamörk á þau, því það leiðinlegasta sem ég veit er að líta í dagbókina mína og sjá: í dag verð ég orðin 69 kíló og maður er kannski ennþá 75 hahaha.. | |
»
22.01.2008 10:47:32 / skelfan
Frábært að sjá hve margir eru enn virkir og takk fyrir að gefast ekki upp á mér og halda áfram að fylgjast með mér. Fyndið hvað manni finnst maður þekkja marga hérna af átaksbloggurum, held ég hafi nú bara samt hitt eina af ykkur Ég stend mig enn bara vel, er að reyna að minnka sykurinn eða taka hann algjörlega út og borða meira grænmeti og svona, í anda DDV Kannski maður fari að skella sér aftur á fundi og í vigtun, ætla aðeins að melta það Er ennþá súper dugleg í Bootcamp líkt og áður og hef æft þar í 1,5 ár! Mæti þrisvar sinnum í viku í minnsta lagi og tel mig því ennþá vera í ágætisformi þótt kílóin mættu alveg missa sín. Hef ekki enn breytt kílóabannernum hér uppi, en veit vel að ég hef þyngst. Er ekki búin að vigta mig og ætla ekki að gera það fyrr en á laugardaginn og mun þá breyta bannernum. Hlakka til að fylgjast áfram með okkur og sjá árangurinn! Gangi ykkur öllum vel og takk fyrir að veita mér svona frábæran stuðning.. væl væl væl hahahaha | | |
»
21.01.2008 08:59:20 / skelfan
Sæl öll sömul Ég er enn á lífi og er að íhuga að byrja að blogga aftur, er einhver sem les mig ennþá eða mun ég tala við sjálfa mig  Kílóin hafa komið hægt og rólega frá því í byrjun des og þarf ég því að spíta í lófana. | |
»
12.11.2007 09:06:44 / skelfan
Sæl öll Gekk vel í síðustu viku og er talan komin niðu rí 72, komma eitthvað.. man það ekki alveg. Setti inn nýja tölu 72,8.... minnir mig og nýjan banner hér að ofan. Ég er mjög sátt og mér líður mjög vel. Skellti mér því út á lífið um helgina og drakk þó nokkuð af bjór, Lite auðvitað hahaha... Gæti því vel verið að vigtin mjakist aðeins upp, en maður verður að njóta lífsins stundum, sérstaklega þegar maður hefur verið svona duglegur hahah.. Verð bara dugleg í vikunni í staðinn! Hvernig gengur ykkur? Það er mjög mikið að gera í vinnu og að flytja .....og því hef ég ekki verið dugleg við að blogga.
»
30.10.2007 11:45:57 / skelfan
Sæl öll Ætla að blogga daglega út þessa viku (reyna það allavega) til að halda mér í góðum gír áfram. Ég fór í allsherjar mælingu í Boot camp í gær og var rosalega ánægð með árangurinn. Fullt af cm farnir, er um 73 kíló og fitu% komin í Normal flokkin!!!!! Jess.... Þarf því í raun ekki að taka mikið af mér í viðbót (er bara 164 cm á hæð þó .... Ég er auðvitað komin í ágætis form í öllu þessu Boot camp æði og því örugglega komin með einhverja vöðva, vonandi... hahahaha... Þannig að ég þarf ekkert að fara niðu rí 50 kílóin  Þjálfarinn var mjög ánægður með mig og vill bara að ég haldi áfram á sömu braut, og ALLS ekki hugsa mikið um kílóin, bara borða hollt og æfa. Ætla því að blogga hér áfram í vikunni til að halda mér á mottunni, þótt enginn kommenti, vona þó að einhverjir kíki í heimsókn...
»
29.10.2007 10:49:08 / skelfan
Jiii hvað ég er léleg að blogga. Er þó engan vegin hætt!!! Er dugleg í Boot camp og nokkuð dugleg í mataræðinu. Sú breyting sem ég sé aðalega, er að skammtarnir hafa minnkað, ég borða ekki eins mikið yfir daginn eins og áður. En er það hættulegt? er ég að hæga á brennslunni minni?? Var 73,5 í gær, sem er það minnsta sem ég hef séð í langan tíma. Sé mikinn mun á mér, úlpur farnar að vera ofvíðar hahaha.. Hlakka til að komast í nýjan tug, en hlakka mest til að auka við mig vöðvamassa í Bootcamp... Ætla að kíkja á ykkur skvísur.
»
10.10.2007 09:24:50 / skelfan
Sæl öll Var fljót að koma mér af stað eftir "fall" tímabil. Setti mér nokkur lítil markmið og hef staðið við þau. Fyrra haust var ég fljót að fitna þar sem maður fellur alltaf í kaffið /brauð og slikkerí í vinnunni. Hef núna verið dugleg við að sleppa þvi, fæ mér frekar ávöxt eða jógúrt, en maður verður nú samt að lifa aðeins og því leyfi ég mér kaffið /brauðið og það, ekki kaffið sjálft, drekk ekki kaffi, á föstudögum. ÞEtta hefur gengið alveg glimrandi vel og ræður greininlega öllu þar sem vigtin er farin að sígja niður. Ég er komin aftur í 75.. og ætla sko ekkert að sjá 76 í bráð! Er alveg hægt að vigta mig heima, og vigta mig því alls ekki lengur hvern einasta dag, það er bara bilun. Í staðin fer ég bara í formlega vigtun í Boot camp og einu sinni í viku í tékk þar sem ég tékka. Í síðustu viku var ég komin upp í 76 og setti mér það markmið að fara úr þeirri tölu fyrir þessa viku og það hafðist! Allt bara með því að sleppa bakkelsinu í kaffinu.. þarf lítið til! Hvernig gengur ykkur?
»
02.10.2007 22:38:04 / skelfan
Sæl öll sömul Takk fyrir öll kommentin, Kíki reglulega á ykkur, en hef dottið algjörlega úr gír og ekki gert neitt í mínum málum. Er allt í einu farin að borða of mikið og of mikið að brauði og nammi og hef farið á tvö fyllerí sem gera auðvitað ekki góða hluti fyrir heilsuna. Ákvað fyrir stuttu síðan að hætta að stíga á vigt huhummmmm..... það þýddi auðvitað át í 4 daga...!!! Ákvað því að ég væri bara þannig típa að ég þarf að fylgjast með kílóum.... Fór á geggjaða Boot camp æfingu í dag þar sem ég var einskonar foringi og gat þvi engan vegin svindlað.. þurfti að gera allar æfingar 100% !!! mjög erfitt.. skellti mér á vigt og sýndi hún 76!!! jamm.. verð bara að sætta mig við það.... En..... tek auðvitað á því núna. Mér finnst allt í lagi að stoppa í 74-75 líkt og ég hef talað um, en ég má ekki sofna að verðinum!!! Takk fyrir öll innlitin.
»
22.09.2007 16:43:27 / skelfan
Komst loksins í vigtun í sundi og var 73,6.. mjög sátt við það!!!! var um 74 síðast og hef ekki séð 73 í 2 ár.. þannig að þetta gengur, en gengur hægt. Er mjög dugleg að æfa og gengur mun betur að halda í við hópinn í Boot camp. Ætla að leggja áherslu á að hlaupa í vetur, heima og á æfingum, þar sem ég þarf að bæta þolið mitt... En eins og er, er ég bara mjög sátt og er að fara með vinkonunum út í kvöld. jibbý!!! Hvernig gengur ykkur? Endilega kvittið fyrir komuna. Ætla að vera duglegri að blogga og duglegri að kíkja á ykkur. LOFA því
»
14.09.2007 08:42:21 / skelfan
Mikið rosalega er gott að hreyfa sig. Er búin að vera ansi dugleg við það þessa vikuna en mataræðið ekki eins gott. Fór ekki í mælingu í vikunni, ætli ég fari ekki í næstu viku.. Stefni á 74.. en sjáum til. Er enn frekar þung frá því um helgina. Hreyfing: Mánudagur - 7 km hlaup. Þriðjudagur - 1 klst í Boot camp. Miðvikudagur - 7 km hlaup. Fimmtudagur - 1 klst í boot camp. Mataræðið - Ágætt en dett stundum í einn bita hér og einn bita þar af einhverju óhollu. ... t.d. fæ mér bita af frönskunum hjá næsta manni og svona haha... Fór í fitness test hjá Boot camp og er búin að bæta mig heilmikið. Hljóp 3 km á mínútu styttri tíma, bætti mig þvílíkt í armbeygjum, en ég gerði (á hnjánum) 85 armbeygjur á 2 mín.. fyrir mánuði síðan gerði í ég 60.. þannig að ég hef bætt mig og er mjög sátt. Vil þó fara að komast upp úr þessum 74-75 kílóum sem ég VISSI að ég myndi staðna í. Þýðir þó auðvitað ekkert að gefast upp.
»
10.09.2007 09:09:28 / skelfan
Sæl öll Takk fyrir öll innlitin og kommentin. Helgin var skemmtileg en um leið slæm matarlega séð. Ætla ekki að velta mér of mikið upp úr því bara standa upp aftur og halda áfram! Skellti mér þó á tveggja tíma útiæfingu með Boot camp á laugardagsmorgun og lifði af 35 mín... veit ekki alveg hvað kom fyrir. Aðeins of mikið af hlaupi og á of miklum hraða, fékk bara deppla fyrir augunum og ældi næstum því. Var því voðalega skömmustuleg þegar ég þurfti að hætta þegar aðeins 35 mín voru búnar af æfingunni. Gafst þó ekki alveg upp heldur fór inn í sal og æfði sjálf  Í dag ætla ég að hlaupa 7 km... og á morgun er síðan Boot camp æfing. Í þessari viku er líklega mæling hjá boot camp og hafði ég sett mér það markmið að sjá 74 kg... held ég nái því.. þar sem ég er um 74 núna, veit þó ekki hver staðan er eftir þessa helgi. Verð bara að gefa í núna og vera dugleg. Hvernig gengur ykkur?
»
05.09.2007 08:55:28 / skelfan
Takk fyrir frábær ráð!!!!!!!!! Þið eruð æði (eins og þið allar hinar auðvitað líka) !!! Skellti mér á Boot camp æfingu í gær og jiii hvað mér leið vel, tók svona aðeins rólegri æfingu en áður, en samt alveg nógu erfiða. ákvað bara að láta verða af því að skoða stöðuna á vigtinni. Veit að það er ekki hollt að fylgjast of mikið með vigtinni, en ég á það til að detta í nammið og annað sukk ef ég hætti algjörlega að fylgjast með stöðunin á vigtinni. Ég er búin að vera að væla yfir því að ég taldi mig vera að þyngjast og átti bara von á því að vera föst í 75 hahaha.. I was so wrong baby!!!!!!! Ég hef lést!!! jibby.. nær heilt kíló farið. Er orðin 74 í öllum fötum seint að kvöldi! I love it! Ætla því að hætta að kvarta og veina. Einbeita mér bara áfram í að ná mínum markmiðum. Þó ég sé nokkuð ánægð með að vera komin niður í 74 kg... þá er markmiðið mitt enn lægra, og vil ég vera enn heilbrigðari og enn léttari á mér!!! 69 kg.. here I come!!! Ég get, Ég ætla Ég skal!! Takk enn og aftur allar fyrir kommentin frá ykkur! Ætla að skella mér á bloggrunt!
»
04.09.2007 11:29:11 / skelfan
Eins og ég átti von á, stöðvast ég núna!!! Eitthvað virðist gerast í líkama mínum þegar ég er í kringum 75 kíló, líkaminn fer þá í einhvers konar jafnvægi og heilinn á mér líka sem geriri það að verkum að ég fer að sukka meira.. Enn og aftur er ég fallin í þann pytt!! Ætla þó ekki að gefast upp. Neita að kíkja á vigt, en held ég verði að fara að gera það til að sjá hver staðan er. Fer í Boot camp í kvöld á æfingu og ætla að kíkja þar. Ef vigtin hefur farið upp á við, þá er það bara gott spark í rassinn. Ef vigtin stendur í stað eða ferð eitthvað niður (hef ekki hugmynd um í hvora áttina vigtin er þessa dagana) þá er það líka bara spark í rassinn. Eruði með einhver ráð til að koma hugarfarinu aftur á ról? Vantar ráð!
»
30.08.2007 22:41:51 / skelfan
Datt óvart ofan í nammipokann í kvöld... væl væl væl !!!
Skil þetta ekki. Gengur stundum svo svakalega vel og svo bara
allt í einu, Rósa frænka kemur í heimsókn og nammipúkinn kemur
með henni.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?�?¢�?¢â�?�š�?¬�?�??�?°g f
Fyrir 1724 dögum
|