Eins og ég átti von á, stöðvast ég núna!!! Eitthvað virðist gerast í líkama mínum þegar ég er í kringum 75 kíló, líkaminn fer þá í einhvers konar jafnvægi og heilinn á mér líka sem geriri það að verkum að ég fer að sukka meira.. Enn og aftur er ég fallin í þann pytt!!
Ætla þó ekki að gefast upp. Neita að kíkja á vigt, en held ég verði að fara að gera það til að sjá hver staðan er. Fer í Boot camp í kvöld á æfingu og ætla að kíkja þar. Ef vigtin hefur farið upp á við, þá er það bara gott spark í rassinn. Ef vigtin stendur í stað eða ferð eitthvað niður (hef ekki hugmynd um í hvora áttina vigtin er þessa dagana) þá er það líka bara spark í rassinn.
Eruði með einhver ráð til að koma hugarfarinu aftur á ról? Vantar ráð!