Ég fylgi DDV (danski kúrinn) mataræðinu og mæti í vigtun vikulega í Garðabæ. Ég er í hlaupahópi hjá Sporthúsinu sem ég reyni að mæta í svona tvisvar sinnum í viku og er þá venjulega hlupið 7 km - 10 km... Ég er einnig með hlaupabretti heima hjá mér og stekk á það einstöku sinnum í viku. Markmiðið er síðan í sumar að komst í Baðhúsið og lyfta.
Í vetur var ég í boot camp þrisvar sinnum í viku og stefni ég á það aftur í haust.
Hvað mataræðið varðar, þá verður farið varlega í stórar breytingar. Ef ég fell í freistni og fæ mér einn súkkulaði mola þá er það ekkert til að væla yfir, bara halda áfram það sem eftir er dags á góðu DDV mataræði.... ætla ekki að eyðileggja allan daginn með því að segja: jæja.. ég er hvort sem er fallin,,, get því alveg dottið í át. En ég á það nefnilega til að detta í át..
Þannig að þrátt fyrir að ég fylgi DDV þá er einn og einn moli inn á milli ekki BANNAÐUR... auðvitað reyni að ég gera þó sem minnst af því að borða óhollt.. en ég bara veit að við eigum bara þetta eina líf og ég ætla ekki að setja ALLT lífið á pásu meðan ég næ mér niður í mína kjörþyngd... Ég ÆTLA að komast í kjörþyngd með þessari aðferð og veit ég vel að með því að leyfa mér eitt og eitt, þá tekur það mig kannski aðeins lengri tíma en ef ég fylgdi DDV 100% alla vikurnar... Ég veit þó líka, af biturri reynslu að með því að fylgja DDV 100% þá FELL ég og gefst upp og fitna enn hraðar en ég grenntist!!!
Þetta er mín aðferð, engir öfgar, bara heilbrigt líf með góðri hreyfingu.